Erlent

Þúsundir á flótta undan eldgosi

Mynd/AP
Tugþúsundir manna eru á flótta undan eldgosi sem hófst í gærkvöldi á eynni Sulawesi í Indónesíu. Gosið kom ekki á óvart þar sem miklar jarðhræringar hafa verið á þessum slóðum undanfarna daga. Búið var að skilgreina 3,5 kílómetra hættusvæði umhverfis eldfjallið Lokon.

Í Indónesíu eru 129 virk eldfjöll og Lokon er eitt af þeim virkustu. Það gaus síðast árið 1991. Gosið nú er mjög öflugt, en ekki hafa borist fregnir af manntjóni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×