Innlent

Eldstöðvarnar í Kötlu og Vatnajökli verður að vakta vel

Hlaupin í Vatnajökli í gær og frá Kötlu um síðustu helgi skýrast bæði af eldvirkni og telja jarðvísindamenn ástæðu til að vakta báðar eldstöðvarnar vel. Engin merki sjást um yfirvofandi umbrot.

Þegar jarðvísindamenn á vegum almannavarna flugu yfir vestanverðan Vatnajökul í gærkvöldi sáu þeir hvar nýir sigkatlar höfðu myndast á stöðum þar sem ekki var áður vitað um jarðhita. Þarna er nú greinilega mikill hiti undir.

Oddur Sigurðsson, jarðfræðingur á Veðurstofunni, segir að hitinn geti stafað hvort sem er af kvikuhlaupi, eldsumbrotum undir jöklinum eða af því að nýtt jarðhitasvæði hafi myndast. Ef það komi upp nýtt jarðhitasvæði sé hraunbráð venjulega ekki langt undan.

Ekki eru liðnir tveir mánuðir frá gosinu í Grímsvötnum. Um síðust helgi virðist Katla hafa bært á sér og nú hafa bæst við hræringar við Hamarinn í Vatnajökli. Margir spyrja eðlilega: Hvað er eiginlega að gerast?

Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur á Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, segir að fylgst sé mjög náið með bæði Kötlu og vestanverðum Vatnajökli. Þar geti ýmislegt gerst þó að engin merki séu um að þar sé eitthvað yfirvofandi.

Oddur segir að eldvirkni virðist koma í lotum. Á sinni ævi hafi hann upplifað kyrrasta tímabil í íslenskri eldgosasögu í þúsund ár. Núna sé greinileg aukning á eldsumbrotum frá því sem var um miðja 20. öld.

Freysteinn segir að menn eigi að vakta vel jarðskorpuna og átta sig á hvaða atburðir geti gerst og vera ekki feimnir við að ræða þá möguleika. Það sé þó engin ástæða til hræðslu.




Tengdar fréttir

Allt var með kyrrum kjörum í Kötlu

Allt var með kyrrum kjörum í Kötlu í nótt eftir skjálfta þar upp á 2,6 síðdegis í gær. Þó var aðeins órói í Goðabungu, í austanverðum Mýrdalsjökli, en hann er ekki talinn vísbending um neinar frekari hræringar.

Eldgos gæti hafa brotist upp við Hamarinn

Líkur eru taldar á að lítið eldgos hafi orsakað hlaupið undan vestanverðum Vatnajökli í gær, að sögn Odds Sigurðssonar jarðfræðings. Tveir nýir sigkatlar, sem ekki var vitað um áður, komu í ljós í flugi almannavarna yfir svæðið í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×