Innlent

Slógu golfkúlu í gegnum bílglugga fyrir slysni

Golfari á golfvelli.
Golfari á golfvelli. Mynd Vísir
Golfiðkun tveggja pilta var stöðvuð í Kópavogi eftir að golfkúla annars þeirra hafnaði í bíl sem ekið var um eina af götum bæjarins samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

Engan sakaði. Lögreglan bendir hinsvegar á að golf er heppilegast að spila á þar til gerðum golfvöllum. Við þá marga er einnig að finna sérstaklega útbúin æfingasvæði sem eru kjörin fyrir áhugasama kylfinga.

Piltunum var gerð grein fyrir þessu en þeir höfðu svo mikla trú á eigin getu, að sögn lögreglunnar, að þeir drógu í efa að golfkúla frá þeim hefði getað lent á bílnum. Engir aðrir kylfingar voru sjáanlegir á svæðinu og segir í tilkynningu lögreglunnar að því þykir líklegast að strákarnir séu ekki eins góðir og þeir sjálfir halda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×