Innlent

Allt var með kyrrum kjörum í Kötlu

Mynd/Stefán Karlsson
Allt var með kyrrum kjörum í Kötlu í nótt eftir skjálfta þar upp á 2,6 síðdegis í gær. Þó var aðeins órói í Goðabungu, í austanverðum Mýrdalsjökli, en hann er ekki talinn vísbending um neinar frekari hræringar.

Hvergi eru heldur vísbendingar um óvænt jökulhlaup eins og varð úr Köldukvíslajökli í vestanverðum Vatnajökli í fyrrinótt, en starfsmenn Veðurstofunnar fylgjast nú grannt með öllum vísbendingum um náttúruhamfarir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×