Innlent

Bensín hækkar í verði

Mynd/Haraldur
Verð á bensínlítra losar 240 krónur á ný eftir að Shell og Olís hækkuðu bensínverðið um þrjár krónur í gær og dísilolíuna heldur minna. Búast má við að hin félögin hækki verðið í dag.  

Það sem af er árinu hefur töluvert dregið úr eldsneytisnotkun samanborið við fyrri ár. Það er bæði rakið til minni framkvæmda á landinu og minni notkunar einkabíla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×