Skar typpið af og henti því í ruslakvörn Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. júlí 2011 20:43 Maðurinn mun sennilegast þurfa einhverja hjálp frá lýtalæknum í framtíðinni. Mynd/ Getty.
Catherine Kieu Becker, kona frá Suður Kalíforníu í Bandaríkjunum var færð í gæsluvarðhald í gær, sökuð um að hafa byrlað eiginmanni sínum ólyfjan, bundið hann niður í rúmið sitt, skorið af honum typpið og hent því í ruslakvörn. Jeff Nightengale, lögreglumaður í borginni Garden Grove, segir að konan hafi sett ólyfjanina í mat eiginmanns síns og gefið honum matinn skömmu áður en hún réðst á hann á mánudagskvöld. Nafn fórnarlambsins hefur ekki verið gefið upp, að sögn Daily Telegraph. Nightengale segir að maðurinn, sem er 51 árs, hafi fundið fyrir ógleði, lagst niður á rúmið og tapað meðvitund. Eiginkonan, sem er 48 ára gömul, hafi þá bundið hendur hans og fætur við rúmið, fjarlægt fötin hans og ráðist á hann með 25 sentimetra eldhúshnífi eftir að hann vaknaði. „Maðurinn var með meðvitund þegar typpið var fjarlægt,“ segir Nightengale. Hann segir að konan hafi svo sett typpið í ruslakvörnina og kveikt á henni. Konan hringdi svo á sjúkraliðið og benti á fórnarlambið. Manninum blæddi gríðarlega þegar sjúkraliðið kom að. Búist er við því að hann lifi ósköpin af. Ekki er vitað hvað olli því að konan réðst með þessum hætti á manninn sinn. Þau höfðu verið gift frá því í desember en hugðust skilja. Árið 1993 varð Lorena Bobbit fræg fyrir að skera undan eiginmanni sínum í Virginíu í Bandaríkjunum.
Mest lesið Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Innlent Sagði Harris nýlega „orðna svarta“ Erlent Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Innlent Samkomulag í höfn við höfuðpaura hryðjuverkaárásanna 11. september Erlent Besta veðrið um verslunarmannahelgina? Veður Viðvörun gefin út vegna úlfs sem beit stúlku og drap púðluhund Erlent Yfir hundrað handteknir í óeirðum í Lundúnum Erlent Ók á mann og stakk af Innlent Rangt að ráðuneytið hafi gefið út leiðbeiningar um kenninöfn Innlent Sautján ára ákærður fyrir morðið á stúlkunum í Southport Erlent Fleiri fréttir Yfirmaður hernaðararms Hamas sagður hafa fallið í árás Ísraela Sautján ára ákærður fyrir morðið á stúlkunum í Southport Viðvörun gefin út vegna úlfs sem beit stúlku og drap púðluhund Samkomulag í höfn við höfuðpaura hryðjuverkaárásanna 11. september Sagði Harris nýlega „orðna svarta“ Yfir hundrað handteknir í óeirðum í Lundúnum Ekki miklar líkur á meiriháttar milliríkjaátökum „Glæsilegur forystumaður sem hreif fólk með sér“ Hvalavinurinn stendur frammi fyrir allt að fimmtán ára fangelsisvist Maðurinn sem greindi frá andláti Elísabetar II játar barnaníð Drápið á Heniyeh vekur hörð viðbrögð og ótta um stigmögnun Tugir lögregluþjóna slasaðir eftir óeirðir öfgamanna í Southport Að minnsta kosti 973 börn frumbyggja létust á heimavistarskólum Fyrsti kosningafundurinn með varaforsetaefninu á þriðjudag Pólitískur leiðtogi Hamas ráðinn af dögum í Íran Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Ísraelar í hefndaraðgerðum gegn Hezbollah í Líbanon Nokkur dauðsföll eftir að þyrla brotlenti á svínabúi Skammast sín vegna skotárásarinnar Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Ber ekki vitni í spillingarrannsókn á eiginkonu sinni Hermenn sakaðir um að misþyrma palestínskum fanga kynferðislega Þriðja stelpan látin í Southport Fjöldamorðingi í My Lai látinn Grunar vinstriöfgamenn um græsku Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráði á þrotum Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Átta enn í lífshættu eftir árásina mannskæðu í Southport Einn látinn í mótmælunum Sjá meira