Erlent

Loftbelgir svífa yfir Frakklandi

Loftbelgjaflugmenn frá öllum heimshornum safnast þessa dagana saman í Chambley-Bussières í Frakklandi, þar sem nú fer fram hin árlega loftbelgjahátíð, Lorraine Mondial air ballons.

Þessi tíu daga langa hátíð hófst þann 22. júlí síðastliðinn, og stendur til 31. júlí næstkomandi, en þetta er í 22. skiptið sem hátíðin er haldin. Flugmönnum frá 67 löndum var boðið á hátíðina, og er búist við að um þrjú þúsund flugmenn og áhafnarmeðlimir sæki hátíðina í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×