Erlent

Amy Winehouse jörðuð á morgun

Margir aðdáendur Winehouse hafa safnast saman fyrir utan hús söngkonunnar til að minnast hennar.
Margir aðdáendur Winehouse hafa safnast saman fyrir utan hús söngkonunnar til að minnast hennar. Mynd/AP
Talsmaður fjölskyldu Amy Winehouse hefur staðfest að útför söngkonunnar muni fara fram á morgun. Athöfnin verður eingöngu ætluð fjölskyldu hennar og vinum.

Lík Winehouse var krufið í dag, en dánarorsökin er enn ókunn. Niðurstöður eiturefnarannsókna munu ekki fást fyrr en eftir tvær til fjórar vikur, en samkvæmt hefðinni fara jarðarfarir gyðinga fram eins fljótt eftir dauða manneskjunnar og auðið er.

Foreldrar Winehouse þökkuðu aðdáendum hennar fyrir stuðninginn í dag og tók faðir hennar í hönd margra þeirra sem stóðu fyrir utan húsið og þakkaði þeim persónulega fyrir að hafa komið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×