Erlent

Dánarorsök enn ókunn eftir krufningu

Mynd/ap
Krufning á líki Amy Winehouse fór fram í dag, en enn hefur engin opinber dánarorsök verið gefin út. Fulltrúi dánardómstjóra heldur því hinsvegar fram að ekkert grunsamlegt hafi fundist við krufninguna.

Beðið er eftir niðurstöðum úr eiturefnarannsóknum, sem ekki munu fást fyrr en eftir tvær til fjórar vikur.

Það var lífvörður söngkonunnar sem fann hana látna í rúmi sínu síðastliðinn laugardag, en samkvæmt talsmanni söngkonunnar hafði hún sagst ætla að leggja sig. Samkvæmt fjölskyldu söngkonunnar hafði hún heimsótt lækni daginn áður en hún lést og fengið þær upplýsingar að hún væri heil heilsu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×