Lífið

Elítan tók formlega á móti Ásdísi Rán

elly@365.is skrifar
„Þetta var Ásdís Rán welcome party sem var haldið til heiðurs mér," útskýrir Ásdís Rán fyrirsæta sem flutti nýverið aftur til Búlgaríu spurð út í meðfylgjandi myndaseríu sem var tekin 20. júlí síðastliðinn þegar búlgarska elítan tók á móti henni, eiginmanni Garðari Gunnlaugssyni og syni, Róbert Andra.

„Það var Evgeni Minchev, einn þekktasti blaðamógullinn í Búlgaríu sem hélt það fyrir mig. Þetta var alveg yndislegt og gott að fá svona hlýjar móttökur. Gestirnir voru allskonar þekkt fólk úr viðskipta- og entertainment heiminum, fulltrúar tímarita, verslana og svo framvegis, segir Ásdís og bætir við:

„Bio effect íslensku droparnir voru með kynningu í partýinu þar sem þeir eru að setja vöruna á markað hér í Búlgaríu og kynntu þá í samstarfi við mig.

„Ég er að selja part af fyrirtækinu mínu hérna í Búlgaríu núna og er að fara á fullt í IceQueen framleiðslu fyrir erlendan markað. Það er að taka mestan minn tíma. Einnig er ég að byrja að hanna fyrir Hagkaup undirfatalínu, casual línu og fleira," svarar Ásdís spurð hvað hún er að brasa um þessar mundir.

„Ég er á forsíðunni á ítalska World & pleasure í ágúst og annari búlgarskri forsíðu sem kemur út í september en einmitt það blað kemur til með að halda svaka IceQueen þema event í tilefni af útkomu blaðsins þannig að skemmtanaglaðir Íslendingar ættu að gera sig ready fyrir trip to Búlgaríu.

„Ég er líka að vinna að gerð raunveruleikasjónvarpsþáttar sem verður sýndur á Íslandi og Búlgaríu ef allt gengur eftir óskum. Mig vantar bara kostanda núna," segir Ásdís.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×