Innlent

Íslendingur stunginn í Amsterdam

Maðurinn var stunginn fimm sinnum í bakið.
Maðurinn var stunginn fimm sinnum í bakið. Myndin er úr safni.
Íslenskur karlmaður á fertugsaldri liggur á sjúkrahúsi í Amsterdam í Hollandi eftir hnífstunguárás í gærkvöldi. Hann var stunginn fimm sinnum en þrátt fyrir það er maðurinn ekki talinn vera í lífshættu. Greint er frá málinu á fréttavef Morgunblaðsins. Maðurinn hefur verið á ferðalagi ásamt tveimur félögum sínum um Evrópu. Svo virðist sem að árásin hafi verið tilefnislaus en árásamaðurinn kom oftan að manninum og stakk hann í bakið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×