Innlent

Felldu kjarasamning

Kjarasamningur félagsmanna Vélstjóra og málmtæknimanna á farskipum var feldur í atkvæðagreiðslu um kjarasamning sem undirritaður var 24. júní síðast liðinn.  Á kjörskrá voru 41, 26 greiddu atkvæði eða 63,4 prósent.

Já sögðu fjórir, eða 15,4% en nei sögðu 22, eða 84,6&. Í tilkynningu frá félaginu segir að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar komi ekki á óvart. Kjör íslenskra vélstjóra séu langt frá þeim launum sem vélstjórar hjá erlendum útgerðum hafi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×