Innlent

Hagver döðlur innkallaðar

Markaðsfyrirtækið Nathan og Olsen hefur með hliðsjón af neytendavernd og í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ákveðið að innkalla af markaði allar Hagver döðlur með best fyrir dagsetningu maí 2012 og lotunúmerið 1133.

Ástæða innköllunarinnar er aðskotahlutur sem fannst í einum poka af vörunni. Ekki kemur fram í tilkynningu Reykjavíkurborgar hver aðskotahluturinn var.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vöruheiti:  Hagver döðlur.

Nettóþyngd:  500 g.

Umbúðir:  Plastpokar.

Best fyrir dagsetning:  Maí 2012.

Lotunúmer:  1133.

Dreifing:  Um land allt.

Neytendur sem hafa í fórum sínum Hagver döðlur með best fyrir dagsetningu maí 2012 og lotunúmerið 1133 eru beðnir um að farga vörunni eða skipta henni út fyrir nýja hjá Nathan & Olsen hf, Klettagörðum 19, Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×