Innlent

Engar afbókanir til Lundúna

Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir félagið ekki hafa orðið vart við neinar afbókanir á flugum til London vegna óeirðanna sem standa nú yfir í Bretlandi.

Icelandair sendir tvær flugvélar til London daglega, en svo virðist sem farþegar láti fréttaflutning af innbrotum og íkveikjum ekki hafa áhrif á ferðaviljann. Óeirðirnar hafa því ekki haft teljanleg áhrif á starfsemi fyrirtækisins. Ekki náðist í talsmenn Iceland Express við gerð fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×