Innlent

Hlekktist á í lendingu í Fljótum

Þrír menn sluppu nær ómeiddir þegar lítilli flugvél þeirra hlekktist á í lendingu við Lambanes í Fljótum í gærkvöldi. Þeir fóru allir á heilsugæsluna á Sauðárkróki til skoðunar. Ekki er vitað um tildrög óhappsins, en vélin mun vera mikið skemmd.  Rannsóknanefnd flugslysa mun að líkindum rannsaka málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×