Innlent

Féll í götuna á Grafningsvegi og axlarbrotnaði

Bifhjólamaður slasaðist þegar hann missti stjórn á hjóli sínu á Grafningsvegi í gærkvöldi og féll í götuna. Hann axlarbrotnaði í fallinu en hjólið þeyttist út fyrir veg, hafnaði þar á steini og er talið ónýtt. Engar vísbendingar eru um hraðakstur.

Annar bifhjólamaður var hinsvegar stöðvaður og tekinn úr umferð eftir að hafa mælst á 154 kílómetra harða á Suðrulandsvegi austan við Selfoss í gærkvöldi. Hann verður sviftur ökuréttindum í mánuð og fær 130 þúsund króna sekt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×