Innlent

Tíu teknir fyrir vörslu fíkniefna

Hugrún Halldórsdóttir skrifar
Tíu voru teknir fyrir vörslu fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu í nótt, þar af voru tveir grunaðir um sölu og dreifingu. Þrír ökumenn voru teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og tveir fyrir ölvunarakstur. Fimm gistu fangageymslur lögreglunnar.

Nóttin var annasöm hjá lögreglunni á Selfossi en mörg verkefni komu upp á borð hennar, til að mynda minniháttar slagsmál, skemmdarverk, þjófnaður og tilkynningar um hávaða frá drykkjuhrútum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×