Þeir hjá Lax-Á heyrðu í Sigurði Vilhjálmssyni stórveiðimanni en hann var við veiðar í Syðri Brú í einn dag 2. Ágúst. Sigurður setti í 9 laxa og landaði 8 af þeim, þar af var einn 87cm en honum var sleppt aftur.
Allir laxarnir komu af Landaklöppinni og komu meðal annars á á Sunray shadow, Collie dog og Kröflufluguna Skrögg. Sigurður sagði nóg af laxi vera á svæðinu og hann hafi séð fullt af laxi koma inná svæðið.
Birt með góðfúslegu leyfi Lax-Á

