Innlent

Breytingar vegna Gay Pride

Strætó
Strætó Mynd úr safni
Talsverðar breytingar verða á akstri Strætó á morgun vegna gleðigöngu Hinsegin daga og hátíðahalda í miðborginni.

Í tilkynningu frá Strætó segir að það þurfi að breyta aksturleiðum og loka nokkrum stoppistöðvum á meðan hátíðarhöldunum stendur en gangan fer ekki niður Laugarveg eins og síðustu ár. Hún hefst við Vatnsmýrarveg og gengið verður norður Sóleyjargöt, eftir Fríkirkjuvegi og Lækjargötu og framhjá Arnarhóli þar sem útitónleikar verða að lokinni göngu.

 

„Alls breytist akstur á níu akstursleiðum. Leiðir 1, 3, 6, 11, 12 og 13 aka frá Hlemmi, norður Snorrabraut - Sæbraut - Grettisgötu - Mýrargötu - Ánanaust - Hringbraut og inn á sínar leiðir og sömu leið til baka. Leið 14 ekur frá Hlemmi í átt að Granda suður Snorrabraut - Hringbraut - Ánanaust að Granda og sömu leið til baka. Leiðir 15 og 19 aka um nýju Hringbraut í báðar áttir eftir klukkan 12:00. Gert er ráð fyrir að opnun gatna verði í fyrsta lagi klukkan 20:00. Að öðru leyti verður akstur strætisvagna samkvæmt hefðbundinni laugardagsáætlun. Ítarlegar upplýsingar um breytingar á akstri Strætó má finna á vefnum strætó.is,“ segir í tilkynningunni.

 

Eins og undanfarin ár er búist við miklum fjölda fólks í miðborginni á meðan á hátíðahöldunum stendur. Strætó hvetur því sem flesta til að nýta sér almenningssamgöngur til að komast til og frá svæðinu og stuðla þannig að því að draga úr umferðarálagi í borginni. Farþegar eru jafnframt hvattir til að kynna sér áætlanir Strætó og upplýsingar um breytingar á vefnum strætó.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×