Innlent

Lýsa eftir stolinni bifreið

Lögreglan á Akureyri lýsir nú eftir bifreið, sem tilkynnt var að hefði verið stolið þann 31. júlí síðastliðinn. Bifreiðin er af gerðinni Hyundai Sonata, árgerð 1995, blágræn að lit og með bílnúmerið SY152.

Ef fólk verður vart við bifreiðina biður lögreglan á Akureyri það vinsamlegast um að hafa samband í síma 464-7700.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×