Innlent

Jackass sprelligosinn Steve O til Íslands

Sprelligosinn Steve O úr Jackass er á leið til landsins í haust með uppistandið sitt. Skipuleggjandi sýningarinnar segir hana alveg örugglega verða bannaða innan sextán.

Fæst venjulegt fólk myndi láta detta sér það í hug að framkvæma það sem Steve O tekur sér fyrir hendur. Hann hefur hinsvegar lifibrauð sitt af fíflalátum og misþyrmingum af ýmsu tagi og vílar ekki fyrir sér að láta kýla sig, skjóta sig eða gefa sér stuð til að skemmta áhorfendum.

„Hann var víst og er rosalega villtur. Hann drakk alveg rosalega og það var ekkert óalgengt að hann henti sér af sviðinu og færi að lemja einhvern sem þar var með læti." segir Guðbjartur Finnbjörnsson, skipuleggjandi sýningarinnar á Íslandi, en hann bætir því þó við að Steve sé búinn að vera edrú í þrjú ár og hafi því róað sig aðeins.

Steve O hefur beðið Guðbjart um ýmsa hluti til að hafa á sviðinu í Háskólabíói og nefnir Guðbjartur þar hluti eins og sítrónur, eitthvað til þess að kveikja í og hníf. Þá hefur sprelligosinn einnig ítrekað þá beiðni að ekkert áfengi verði til staðar á hótelherbergi hans.

Aðspurður hvort kaupa þurfi aukatryggingar fyrir Steve O segir Guðbjartur „Ég þarf nú bara að athuga það, jú ætli það ekki."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×