Innlent

Fjölgar í hópi nema í heimilislækningum

Alma Eir Svavarsdóttir, kennslustjóri sérnáms í heimilislækningum er að vonum ánægð með þann mikla áhuga sem læknar sýna sérnáminu ekki síst í ljósi þeirrar vöntunar sem er á heimilislæknum hér á landi um þessar mundir.

Tólf læknar hafa verið ráðnir í sérnám í heimilislækningum innan Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fleiri hafa sýnt náminu áhuga og gæti hópurinn því stækkað enn frekar áður en formlegt nám hest í lok þessa mánaðar.

Forsvarsmenn heilsugæslunnar telja þennan fjölda umsókna sýna aukinn áhuga á heimilislækningum.

Alma Eir Svavarsdóttir, kennslustjóri sérnáms í heimilislækningum er að vonum ánægð með þann mikla áhuga sem læknar sýna sérnáminu ekki síst í ljósi þeirrar vöntunar sem er á heimilislæknum hér á landi um þessar mundir.

Fyrir eru 12 læknar í sérnámi í heimilislækningum á vegum Velferðarráðuneytisins en þær stöður sem nú bætast við eru kostaðar af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Til að mæta þeim kostnaði hefur lausum stöðum sérfræðinga innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins verið breytt í sérnámsstöður í heimilislækningum.  Sérnámsstöðurnar eru til þriggja ára en námið er skipulagt í samvinnu við Landspítala háskólasjúkrahús. Að þeim tíma loknum taka læknarnir þau tvö ár sem þá vantar til að ljúka fimm ára sérnámi í heimilislækningum ýmist hér heima eða erlendis.

Margrét Ólafía Tómasdóttir umsjónardeildarlæknir er einn þeirra ungu lækna sem í dag stunda sérnám í heimilislækningum. Hún segir að á undanförnum árum hafi vinsældir náms í heimilislækningum verið að aukast.  Bæði virðist hugmyndafræði heimilislækninga höfða til ungra lækna í dag en einnig skipti máli að almenn ánægja er með sérnámið sem boðið er upp á hér heima.

„Hjá þeim læknum sem ekki fara strax í framhaldsnám erlendis verður sífellt vinsælla að velja sérnámið í heimilislækningum hér heima. Kennsluprógrammið er mjög gott og fyllilega sambærilegt við það besta sem býðst annars staðar á Norðurlöndum," segir Margrét. 

Hún bætir því við að það henti mörgum að komast í sérnámsstöðu til þriggja ára þar sem framhaldsnámið er fléttað á markvissan og skipulegan hátt inn í starfið, frekar en að ráða sig á sjúkrahús þar sem aðeins er um eins árs stöður að ræða.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×