Innlent

Frekari niðurskurður skerðir þjónustu

Hugrún Halldórsdóttir skrifar
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags hjúkrunarfræðinga, segir að reynt hafi verið að hagræða og skera niður hjá Landspítalanum eftir fremsta megni á góðæristímum en frá efnahagshrunið hafi það verið gert af mikilli hörku. Nú sé hins vegar komið að þolmörkum og ekki hægt að skera meira niður án þess að skerða þjónustu við sjúklinga verulega.

„Erlendar rannsóknir hafa sýnt að því meira álag sem er á heilbrigðisstarfsmönnum og því langvarandi sem það er, þeim mun meiri hætta er á mistökum og það auðvitað skaðar heilsu ef einhver verður fyrir mistökum inn á spítala eða vegna þess að það er ekki tími til að fylgjast með einhverri óæskilegri þróun í heilsu viðkomandi."

Hún gefur lítið fyrir þau orð sem velferðarráðherra lét falla í gær um að þjónustan geti farið aftur sem nemur þremur til fjórum árum þar sem ástandið á þeim tíma hafi verið ágætt. Miklar breytingar hafi orðið á þessum tíma sem ekki sé hægt að horfa framhjá.

„Menn verða þá að fara ofan í kerfið eins og það er í dag og ákveða hvað af því nýja sem við höfum tekið upp við ætlum að hætta við að gera, eða hvað af því sem við gerðum þá fyrir þremur fjórum fimm árum við ætlum að hætta við. Það er ekki bara hægt að þrýsta kerfinu niður."

Elsa telur nauðsynlegtt að kalla eftir heildstæðri stefnu í uppbyggingu og þróun heilbrigðismála hér á landi og segir félagið bjóða fram krafta sína við slíka stefnumótun.

„Hjúkrunarfræðingar eru langfjölmennasta heilbrigðisstéttin og á Landspítalanum einum vinna 1.350 hjúkrunarfræðingar þannig að við teljum að með menntun okkar og reynslu höfum við mikið að segja inn í stefnumótun í heilbrigðisþjónustunni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×