Innlent

Umboðsmaður Alþingis kannar kvörtun Hagsmunasamtaka Heimilanna

Umboðsmaður Alþingis hefur krafið Seðlabankastjóra skýringa á reglum sem heimila verðtryggingu á höfuðstól lána. Hagsmunasamtök heimilanna segja þetta veigamikið mál fyrir heimilin í landinu en þau sendu kvörtun til Umboðsmanns um þetta mál.

Hagsmunasamtök Heimilanna telja það ólögmætt að verðbætur séu lagðar við höfuðstól lánsfjár. Þau byggja þessa skoðun sína á lögum um vexti og verðtryggingu en í þeim segir að verðtrygging sé þegar skuldari lofar að greiða peninga þar sem umsamið er að greiðslurnar skuli verðtryggðar. Hagsmunasamtökin telja því lögin einungis gera ráð fyrir því að bæta megi verðbótum við greiðslur af láni, en ekki höfuðstól þess.

Reglur Seðlabankans kveða hins vegar á um að höfuðstóll láns skuli breytast í samræmi við vísitölu neysluverðs, þ.e. að verðtryggja megi höfuðstólinn.

Umboðsmaður Alþingis kannar nú málið og hefur sent Seðlabankanum bréf þar sem þess er krafist að Seðlabankinn útskýri á hvaða lagagrundvelli reglur hans um að verðtryggja megi höfuðstól lána séu reistar.

Umboðsmaður bendir á að ákvarðanir stjórnvalda verði að eiga sér stoð í lögum. Þá tekur hann það jafnframt fram að af þeim gögnum eða upplýsingum sem hann hafi kynnt sér verði ekki fyllilega ráðið hvernig framkvæmd þessara mála hafi verið háttað á liðnum árum. Þess er krafist að bankinn svari bréfi umboðsmanns eigi síðar en 26. ágúst.

Andrea J. Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, segir að ef niðurstaða umboðsmanns Alþingis verði að verðtrygging höfuðstóls sé ólögmæt muni það hafa mikil áhrif á heimilin í landinu.

Andrea óttast hins vegar að ef umboðsmaður Alþingis kemst að sömu niðurstöðu og hagsmunasamtökin muni það ekki duga til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×