Innlent

Segir umræðu um kjötskort ýkjukennda

Forstjóri Slátursfélags Suðurlands, sem er einn stærsti sláturleyfishafinn á kjötkmarkaði, telur að um 300 tonn af lambakjöti séu til í landinu. Hann segir umræðu um kjötskort ýkjukennda.

Útflutningur á lambakjöti hefur verið að færast í aukana, en undanfarnar vikur hafa komið fram fullyrðingar um að allt stefni í kjötskort á innanlandsmarkaði og lambakjöt vanti í verslanir. Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, áætlar þó að nóg sé til af birgðum í landinu; um 300 tonn í heildina þegar allar lambakjötsafurðir eru taldar saman.

„Sláturfélagið skortir ekki kjöt," segir Steinþór. „Við eigum kjöt í allar okkar vörur, en það er alveg ljóst að suma sláturleyfishafa skortir kjöt. Hins vegar á sá skortur ekki að ná inn í verslanirnar, því við getum að minnsta kostið boðið allar okkar vörur úr lambakjöti, og þá er það bara verslananna að panta."

Engu að síður leiddi óformleg könnun fréttastofu í gær í ljós að í mörgum verslunum var lítið til af lambakjöti, en í einni þeirra var ekki til eitt einasta sunnudagslæri. Hvernig skýrir Steinþór það?

„Ég sá þarna sýnd kjötborð. Það er alveg ljóst að við eigum ekki kjöt til að selja verslunum fyrir þeirra eigin vinnslu, svo það getur verið vöntun á slíkum vörum. En við eigum nóg í allar okkar vörur, svo það er fullt framboð af frosnu og marineruðu lambakjöti af öllum tegundum."

Steinþór segir umræðuna um kjötskortinn ýkta. „Það er líka greinilega ýtt undir ákveðna hluti til að þrýsta á innflutning af hálfu þeirra sem eiga hagsmuna að gæta. En slátrunin er að hefjast í þessari viku og þeirri næstu, svo ég sé enga ástæðu til að fara á límingunum vegna þessa."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×