Innlent

Eitt innbrot tilkynnt í borginni

Tilkynnt var um innbrot í heimahús í höfuðborginni í nótt en þar hafði þjófur brotið sér leið inn og haft með sér sjónvarp fjölskyldunnar.

Þá var einn ökumaður tekinn ölvaður undir stýri. Að öðru leyti var nóttin með eindæmum róleg í höfuðborginni að sögn lögreglu. Til marks um það gisti enginn fangageymslurnar, sem þykir tíðindum sæta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×