Innlent

Heimilislaus piltur reyndi að ræna verslun með hamri

10-11 verslun
10-11 verslun Mynd úr safni
Nítján ára gamall piltur reyndi að fremja vopnað rán í 10-11 verslun í Glæsibæ í nótt. Hann kom grímuklæddur inn í verslunina og var vopnaður klaufhamri. Öryggisvörður var í versluninni og tilkynnti hann ránið til lögreglu í gegnum talstöð. Pilturinn var svo yfirbugaður léttilega, eins og varðstjóri orðar það, inni í verslunni nokkrum mínútum síðar.

Pilturinn sagðist vera heimilis- og peningalaus en hann var undir áhrifum fíkniefna. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni verða hans mál skoðuð í dag en hann hefur orðið uppvís að alls kyns brotum síðustu vikur og mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×