Innlent

Vatnið aftur tekið af í efra Gerðahverfi

Mynd úr safni
Viðgerðum á stofnlögn í efra Gerðahverfi á Akureyri verður haldið áfram í dag. Vegna þess var vatnið tekið af í hverfinu um hádegisbilið en vonir standa til að hægt verði að hleypa því aftur á síðdegis, eigi síðar en fyrir kvöldmat

Norðurorka, sem sér um viðgerðirnar, bendir viðskiptavinum sínum  á að gæta vel að því að allir kranar séu lokaðir þegar vatn kemur á aftur eftir lokunina á morgun.  Eins er viðskiptavinum bent á að huga að hitakerfum sínum, dælum á gólfhitalögnum, varmaskiptum og öðrum slíkum búnaði.  Jafnframt er mjög gott að lofttæma ofnakerfi eftir að vatnið er komið á.  Hafi viðskiptavinir ekki þekkingu á búnaði sínum er nauðsynlegt að hafa samband við píplagningameistara til þess að huga að kerfinu og búnaði þess




Fleiri fréttir

Sjá meira


×