Innlent

Lögðu hald á 80 kannabisplöntur

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Ártúnsholti í gær. Við húsleit var lagt hald á um 80 kannabisplöntur og ýmsan búnað tengdan starfseminni. Þrír aðilar voru yfirheyrðir vegna málsins.

Þetta kom fram í fréttatilkynningu frá lögreglu, en þar er einnig minnt á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×