Lífið

Styrkja hjartveik börn í ár

Ellý Ármannsdóttir skrifar
„Á allra vörum", sem leggur nú af stað í sína fjórðu landssöfnun, boðaði í dag til blaðamannafundar í anddyri Baranspítala Hringsins við Hringbraut en samtökin ætla að styrkja hjartveik börn á Íslandi í ár.

Á allra vörum glossinn frá Dior var afhentur nokkrum mæðrum og ömmum sem allar hafa kynnst því á eigin skinni að eiga hjartveik börn. Þar á meðal voru Kolbrún Björnsdóttir og Anna Steinssen sem deila með okkur reynslu sinni og barnanna í meðfylgjandi myndskeiði.

Kolbrún, á 18 mánaða gamla dóttur, Helenu, sem er með tvenns konar galla, op á milli gátta og þrengsli í lungnaslagæðaloku og Anna á 5 ára dreng, Aron, sem fæddist með mjög alvarlegan hjartagalla og fór aðeins 3ja daga gamall til Boston í aðgerð.

Á allra vörum á Facebook.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×