Innlent

Fjögurra manna fölskylda í sjálfheldu

Egilsstaðir
Egilsstaðir
Björgunarsveitin Hérað á Egilsstöðum var kölluð út í dag þegar fjögurra manna fjölskylda komst í sjálfheldu í klettum fyrir ofan sumarbústaðahverfi á Úlfsstöðum.

Fjölskyldan hafði lagt af stað í göngu um klettana, en foreldrarnir hringdu eftir hjálp þegar þau gerðu sér grein fyrir því að þau treystu sér ekki lengra og sátu föst í klettunum ásamt börnum sínum, sem eru fimm og átta ára gömul.

Björgunarsveitin er nú á staðnum að hjálpa fjölskyldunni niður á jafnsléttu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×