Innlent

Gagnrýnin er aukinn vindur í seglin

Samfylking og Besti flokkurinn mynda meirihlutann
Samfylking og Besti flokkurinn mynda meirihlutann Mynd Brink
Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar í borgarstjórn, segir gagnrýni minnihlutans á vinnu meirihlutans við þriggja ára fjárhagsáætlun borgarinnar blása auknum vindi í seglin í þeirri vinnu. Hann bendir á að frágangur áætlunarinnar hafi tafist vegna flutnings á málefnum fatlaðra frá ríki til borgar, og þar af leiðandi óvissu um fjármögnun málaflokksins. Þetta hafi öllum verið kunnugt um svo mánuðum skiptir.

Tæplega hálft ár er síðan borgin átti að skila áætluninni og hefur innanríkisráðuneytið hótar viðurlögum ef henni verður ekki skilað fyrir 18. ágúst.

Nú stendur yfir aukafundur í borgarstjórn þar sem borgarfulltrúar voru kallaðir úr sumarleyfi til að ganga frá áætluninni.


Tengdar fréttir

Segir ekkert lagt í þriggja ára áætlun meirihlutans

Aukafundur hefst í Borgarstjórn Reykjavíkur klukkan tvö í dag en minnihlutinn óskaði eftir því að fundurinn færi fram. Á fundinum mun meirihlutinn leggja fram þriggja ára fjárhagsáætlun eins og skylt er að gera, en það hefur dregist frá því í febrúar.

Hanna Birna: Óafsakanlegt að skila of seint

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, segir það grafalvarlegt og algjörlega óafsakanlegt að svo stórt sveitarfélag sem Reykjavíkurborg er, sinni því ekki að lögum og reglum með þeim afleiðingum að borgaryfirvöldum er hótað því að viðurlögum verði beitt ef ekki verði bætt úr hið fyrsta. Aukafundur í borgarstjórn, sem minnihlutinn boðaði til, hófst klukkan tvö og voru borgarfulltrúar kallaðir úr sumarleyfi til að mæta á fundinn. Ástæðan er sú að tæplega hálft ár er liðið síðan Reykjavíkurborg átti að skila inn þriggja ára fjárhagsáætlun og hefur borgarstjórn borist bréf frá innanríkisráðuneytinu þar sem gefinn er frestur til 18. ágúst til að skila áætluninni, ella verði gripið til aðgerða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×