Lífið

Mikið rétt skvísunum var boðið

Myndir/Ása Ottesen
Síðasta föstudag hélt Knattspyrnufélagið Mjöðm, sem er lið sem teflir fram helstu listaspírunum sem kunna að leika með knöttinn, skemmtun á veitingastaðnum Faktorý undir nafninu Bjúddarinn 2011.

Fjöldi tónlistarmanna kom fram við þetta tækifæri, svo sem Berndsen, 
Fallegir menn,
 Benni Hemm Hemm,
 Rambó Kings,
 Jack Schidt (Margeir) og Sprengjuhöllin.

Eins og myndirnar sýna mættu aðal skvísur bæjarins, þá var tískusýning og keppni í Guinness-hringamyndun. Eftir hvern sopa af Guinness bjór myndast hringur í glasi þátttakenda sem reyna að framkalla fegurstu hringina í glösum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×