Viðskipti erlent

Amazon kynnir Kindle Fire

Kindle Fire verður í beinni samkeppni við Ipad.
Kindle Fire verður í beinni samkeppni við Ipad. Mynd/AFP
Vefverslunarfyrirtækið Amazon.com mun í dag opinbera sína nýjustu vöru - Kindle Fire. Amazon fer þannig í beina samkeppni við Ipad tölvu Apple risans. Kindle Fire mun státa af 7 tommu snertiskjá og verður knúinn af Android stýrikerfinu. Notendur munu þó vætanlega ekki kannast við stýrikerfið enda hefur Amazon algjörlega endurhannað viðmót þess. Á síðustu mánuðum hefur Amazon hvatt hugbúnaðarframleiðendur til að þróa ný forrit fyrir Kindle Fire. Sérfræðingar telja að tölvan muni taka snið af Blackberry Playbook og muni einnig notast við sama örgjörva.

Kindle Fire verður tengd vefverslun Amazon svo að notendur geti haft aðgang að keyptu efni, þetta tekur til mp3 skráa sem og Kindle Book Store. Einnig mun Amazon halda áfram að þróa Ský-dreifingu en hún gerir notendum kleift að hafa aðgang að efni sínu hvar sem er og hvenær sem er. Verðmiðinn á Kindle Fire verður ekki jafn ógnvænlegur og á öðrum spjaldtölvum. Þannig mun verðið líklega ekki fara yfir 300 dollara eða 35.000 kr. Talið er að Kindle Fire fari í dreifingu í nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×