Lífið

Á rauða dreglinum í 66°Norður úlpu

elly@365.is skrifar
myndir/cover media
Leikstjórinn og leikarinn Eli Roth, 39 ára, var klæddur í svarta úlpu frá 66°Norður á rauða dreglinum á frumsýningu myndarinnar The Thing í Los Angeles í gærkvöldi.

Langflestir frumsýningargesti voru prúðbúnir en Íslandsvinurinn Eli Roth, sem er mjög hrifinn af íslenskri hönnun sem og landi og þjóð, var almennilega klæddur.

Með Eli var enginn annar en Marilyn Manson eins og sjá má á myndunum.

Eli klæddist66°Norðurúlpu sem ber heitið Þórsmörk en hún er ein vinsælasta úlpan frá fyrirtækinu. Úlpan er úr 70% gæsadún og 30% fiðri og þolir -25 gráðu frost. Sjá hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×