Handbolti

Öll úrslit dagsins í N1-deild kvenna - Naumur sigur HK

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jóna Sigríður Halldórsdóttir í leik með HK.
Jóna Sigríður Halldórsdóttir í leik með HK. Mynd/Stefán
Valur er enn með fullt hús stiga í N1-deild kvenna en öll toppliðin fjögur unnu sigra á andstæðingum sínum í dag. Lítil spenna var í leikjunum, nema þá í viðureign HK og ÍBV sem fyrrnefnda liðið vann með eins marks mun, 24-23.

HK var skrefi framar í fyrri hálfleik og með tveggja marka forystu í hálfleik, 12-10. Heimamenn byrjuðu svo síðari hálfleikinn af miklum krafti og komust mest í sjö marka forystu, 22-15.

Eyjastúlkur byrjuðu að saxa á forystuna eftir þetta en voru samt fimm mörkum undir, 24-19, þegar skammt var til leiksloka. ÍBV náði að skora fjögur síðustu mörk leiksins en nær komst liðið ekki og HK fagnaði naumum sigri.

Florentina Stanciu varði bæði vítaköst HK í leiknum en Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir átti einnig góðan leik í marki HK.

Valur er á toppnum með átta stig, Fram og HK eru með sex og Stjarnan með fjögur. Öll önnur lið eru með tvö stig, nema Grótta sem er enn án stiga.

Úrslit og markaskorarar:

HK - ÍBV 24-23 (12-10)

Mörk HK: Brynja Magnúsdóttir 7, Elísa Ósk Viðarsdóttir 3, Heiðrún Björk Helgadóttir 3, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 2, Elva Björg Arnarsdóttir 2, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 2, Arna Björk Almarsdóttir 2, Harpa Baldursdóttir 1.

Varin skot: Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir 13/1 (31/3, 42%), Dröfn Haraldsdóttir 1 (5/1, 20%).

Mörk ÍBV: Grigore Ggorggta 7, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 5, Ivana Mladenovic 5, Kristrún Hlynsdóttir 2, Ester Óskarsdóttir 2, Hildur Dögg Jónsdóttir, Marijana Trbojevic 1.

Varin skot: Florentina Stanciu 10/2 (34/2, 29%)

Fram - KA/Þór 32-23 (18-13)

Mörk Fram: Stella Sigurðardóttir 10, Elísabet Gunnarsdóttir 8, Sunna Jónsdóttir 5, Marthe Sördal 2, Ásta Birna Gunnarsdóttir 2, Steinunn Björnsdóttir 2, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 1, Birna Berg Haraldsdóttir 1, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 1.

Mörk KA/Þórs: Martha Hermannsdóttir 8, Ásdís Sigurðardóttir 5, Erla Heiður Tryggvadóttir 3, Kolbrún Gígja Einarsdóttir 3, Guðrún Tryggvadóttir 2, Katrín Vilhjálmsdóttir 2.

FH - Stjarnan 24-34 (8-19)

Mörk FH: Ingibjörg Pálmadóttir 7, Sigrún Jóhannsdóttir 3, Hind Hannesdóttir 3, Sif Jónsdóttir 3, Rakel Sigurðardóttir 3, Hafdís Kristínardóttir 2, Indíana N. Jónsdóttir 1, Kristrún Steinþórsdóttir 1, Berglind Ósk Björgvinsdóttir 1.

Mörk Stjörnunnar: Sólveig Lára Kjærnested 8, Jóna Margrét Ragnarsdóttir 6, Hanna G. Stefánsdóttir 6, Hildur Harðardóttir 5, Rut Steinsen 3, Esther Ragnarsdóttir 2, Lilja Lind Pálsdóttir 2, María Karlsdóttir 2.

Haukar - Valur 22-31 (9-14)

Mörk Hauka: Karen Helga Sigurjónsdóttir 5, Marija Gedroit 5, Ásta Björk Agnarsdóttir 4, Viktoría Valdimarsdóttir 3, Silja Ísberg 2, Ragnheiður Sveinsdóttir 2, Gunnhildur Pétursdóttir 1.

Varin skot: Sólveig Björk Ásmundardóttir 12 (43, 28%)

Mörk Vals: Dagný Skúladóttir 9, Karolína Bæhrenz 8, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 5, Herdís Rún Guðmundsdóttir 2, Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 3, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 2, Þórunn Friðriksdóttir 1.

Varin skot: Sunneva Einarsdóttir 16 (35/2, 46%), Guðný Jenný Ásmundsdóttir (1/1).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×