Lífið

Ýkt flott hár

elly@365.is skrifar
Meðfylgjandi myndir voru teknar síðustu helgi á svokölluðum TIGI degi þar sem meðal annars var haldin vegleg hársýning sem sýndi nýjungar og stefnur þegar kemur að því nýjasta í hártískunni.

Það er áberandi í ár hvað lögð er mikil áhersla á náttúrulega lyftingu í hárið svo það verði þykkra og meðfærilegra, sagði Fríða Rut Heimisdóttir hárgreiðslumeistari og eigandi TIGI á Íslandi spurð út í hártískuna í ár.

Þennan dag fengum við erlenda og íslenska fagmenn til að koma með sem mestan innblástur fyrir hárfagfólk alls staðar af landinu eins og Akureyri, Sauðárkróki, Reykjavík, Skagaströnd, Húsavík, Ísafirði, Hornafirði, Blönduós, Keflavík, Grindavík, Selfossi og Akranesi,
sagði Fríða Rut einnig.

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá glænýja línu sem ber heitið Candy frá Bed Head sem er meðal annars unnin úr sykri.

TIGI.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×