Lífið

Ný fylgihlutalína Meyja by Gyðja Collection

Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru fyrir auglýsingaherferð nýju íslensku fylgihlutalínunnar Meyja by Gyðja Collection sem er framleidd sérstaklega fyrir verslanir Hagkaups.

Yfirhönnuður línunnar er Sigrún Lilja Guðjónsdóttir en fyrirtæki hennar Gyðja sá alfarið um hönnun og framleiðslu línunnar sem er öll handunnin.

Ég er hæstánægð með myndatökuna enda er Kári alveg ofboðslega hæfileikaríkur ljósmyndari. Ég er full tilhlökkunar að fá loksins að kynna Meyju línuna til sögunnar og vona að hún muni falla vel í kramið hjá íslenskum konum, segir Sigrún Lilja ánægð með útkomuna en hún er einnig andlit auglýsingaherferðarinnar.

Að sögn Sigrúnar Lilju var sérstök áhersla var lögð á að skó- og töskulínan væri á viðráðanlegu verði en Meyja verður formlega kynnt til leiks á morgun laugardag með glæsilegri tískusýningu sem haldin verður fyrir utan Hagkaup í Kringlunni á 2. hæð klukkan 14:30.

Meðfylgjandi má sjá myndband tekið bak við tjöldin.

Vefsíða Gyðju.

Kári ljósmyndari á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×