Lífið

Magga Pála er svo með´etta

elly@365.is skrifar
Meðfylgjandi myndir voru teknar í bókabúð Máls og menningar í útgáfuteiti Margrétar Pálu Ólafsdóttur í tilefni af útkomu bókarinnar Uppeldi er ævintýri en þar gefur hún góð ráð til að ná árangri og meiri gleði í samskiptum við börn, jafnt innan fjölskyldna sem annars staðar.

Margrét Pála, forsvarsmaður Hjallastefnunnar, er ein áhugaverðasta uppeldis- og skólamálamanneskja landsins á því leikur enginn vafi en hún er fyrir löngu þjóðþekkt fyrir störf sín með börnum sem kennari, fyrirlesari og álitsgjafi, enda hefur hún um 30 ára reynslu að baki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×