Lífið

Mikið rétt fallega fólkið mætti

elly@365.is skrifar
myndir/elly@365.is
Meðfylgjandi myndir voru teknar á árlegu góðgerðar- og konukvöldi sem haldið var í fataversluninni Cosmo í Kringlunni í gærkvöldi þar sem fjöldi kvenna kom saman til að versla og hafa það gaman.

Sigríður Klingenberg spáði og Karl Berndsen, sem var leynigestur kvöldsins, var einstakur ráðgjafi gesta þegar kom að fata- og litavali.

Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar Ragna, sem vann happdrættisvinning að upphæð 50 þúsund krónur, ákvað að gefa hann til Fjölskylduhjálpar Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×