Körfubolti

Sigur hjá Jóni en Haukur tapaði fyrir Barcelona

Jón Arnór.
Jón Arnór.
Jón Arnór Stefánsson skoraði 5 stig og tók 4 fráköst fyrir lið sitt, CAI Zaragoza, þegar það lagði Blusens Monbus, 80-71, í spænska körfuboltanum í kvöld.

Jón Arnór lék í 23 mínútur í kvöld og var ekki að hitta vel. Eitt af sex tveggja stiga skotum hans fór ofan í og eitt af fimm þriggja stiga skotum fór rétta leið.

Haukur Pálsson komst síðan ekki á blað hjá liði sínu, Assignia Manresa, en tók eitt fráköst í tapleik gegn Barcelona, 74-61.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×