Körfubolti

Jakob sjóðheitur í sigri Sundsvall | Óvæntur sigur hjá Jämtland

Svíþjóðarmeistarar Sundsvall Dragons unnu fínan heimasigur á ecoÖrebro í sænska körfuboltanum í kvöld. Lokatölur 94-84.

Jakob Örn Sigurðarson fór hamförum í liði Sundsvall og skoraði 28 stig. Hlynur Bæringsson skoraði 17 og tók 11 fráköst. Pavel Ermolinskij skoraði 11 stig, gaf 11 stoðsendingar og tók 7 fráköst.

Brynjar Þór Björnsson og félagar í Jämtland komu skemmtilega á óvart með því að vinna útisigur á Norrköping, 72-86. Brynjar Þór skoraði 9 stig, tók 3 fráköst og gaf 2 stoðsendingar.

Helgi Már Magnússon og félagar lágu síðan fyrir Lf Basket, 64-83. Helgi Már skoraði 5 stig í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×