Innlent

"Borgin er að eyða tíma sínum í að berjast við vindmyllur“

Monte Carlo á Laugaveginum
Monte Carlo á Laugaveginum
„Ég er búinn að vera í þessum bransa í tuttugu ár, það er svo fjarri því að ég sé að fara loka," segir Margeir Margeirsson, eigandi veitingastaðanna Monte Carlo og Mónakó við Laugaveg.

Skrifstofustjóri borgarstjórnar hefur lagt það til við borgarráð að það leggist gegn því að veitingastaðirnir tveir fái rekstrarleyfi. Eins árs bráðabirgðaleyfi rann út í febrúar síðastliðnum og nú er staðan sú að borgarráð þarf að gefa út umsögn um hvort að leyfin skuli verða endurnýjuð.

Margeir segir málið vera fjarstæðukennt og sé fjarri raunveruleikanum. „Þetta er svona álíka fjarri lagi og ef ég segði þér að það væri myrkur úti. Þetta er persónuleg árátta Stefáns Eiríkssonar [lögreglustjóra í Reykjavík, innsk.blm.], sem er búinn að fá fólk með sér í lið til að reyna koma mér af Laugaveginum," segir Margeir.

Skrifstofustjóri borgarstjórnar segir í bréfi sínu til borgarráðs að ráðið skuli veita neikvæða umsögn um umsókn fyrir rekstrarleyfi staðanna. Í bréfinu segir að þrátt fyrir bráðabirgðaleyfi til eins árs hafi ekki verið gerðar úrbætur og til dæmis virðist brotum og verkefnum lögreglu hafa fjölgað á ný.

„Ég er búinn að fá skráðar lögregluskýrslur allt árið, sem sýna fram á það að þessi svokölluðu 130 brot varða flest ekki staðina mína," segir hann og kveðst hafa litlar áhyggjur af málinu. „Eins og ég segi, ég hef engar áhyggjur af þetta fólk geti lokað hjá mér, mér bara leiðist að þau séu að eyða tíma sínum í þetta. Ég er ósáttur við fíflagang, borgin er að eyða tímum og kröftum sinna manna í að berjast við vindmyllur, því þetta er bara vitleysa."

„Ef þetta fólk heldur að það sé kjörið í borgarstjórn Reykjavíkur til að hjálpa Stefáni að brjóta lög á mér aftur og aftur, þá er það ekki þannig. Mínir lögfræðingar munu koma til með að svara þessu af fullri hörku," segir hann.

Borgarráð bíður nú eftir að andmælum frá Margeiri og mun síðan í kjölfarið taka málið fyrir. Því næst fer það til lögreglustjórans sem tekur endanlega ákvörðun um hvort að staðirnir tveir fái leyfi eða ekki. Ef umsögn borgarráðs verður neikvæð, á lögreglustjóri að synja beiðni um áframhaldandi leyfi, samkvæmt lögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×