Innlent

Tveimur mönnum bjargað af Esjunni

Við rætur Esjunnar. Mönnunum hafði verið náð af fjallinu þegar fréttastofa kom á staðinn.
Við rætur Esjunnar. Mönnunum hafði verið náð af fjallinu þegar fréttastofa kom á staðinn.
Mönnunum tveimur, sem voru í sjálfheldu á Esjunni, hefur nú verið komið til bjargar, en björgunarsveitarmenn voru langt komnir upp í fjallið þegar þyrla Landhelgisgæslunnar kom á staðinn.

Mennirnir, sem voru á leiðinni niður Esjuna, virðast hafa farið ranga leið og lentu að lokum í slíkri sjálfheldu að þeir neyddust til að kalla eftir hjálp. Þyrlan fór með mennina á spítala en líðan þeirra er ókunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×