Innlent

Verzlingar etja kappi við fræga fólkið

Nokkrir góðir. Frá leiknum í fyrra.
Nokkrir góðir. Frá leiknum í fyrra. Mynd/Daníel Rúnarsson
Nemendur í Verzlunarskóla Íslands mæta svokölluðu All star liði í árlegum fótboltaleik á morgun. Það er Góðgerðaráð skólans sem stendur fyrir leiknum sem fer fram í Kórnum í Kópavogi á morgun.

Leikurinn hefur verið haldinn undanfarin ár til þess að styrkja Litla Verzló, sem er barnaskóli í Úganda. Skólinn var byggður árið 2008 í samstarfi við ABC-barnahjálp. Í fyrra fór ágóði nefndarinnar í að byggja vatnsbrunn á skólalóðinni og í ár er markmiðið að byggja eldhús í skólanum.

Húsið opnar klukkan 19:30 og hefst leikurinn á slaginu 19:45. Þrjú hundruð krónur kostar inn á leikinn.

Erpur Eyvindarson ætlar að halda uppi stuðinu og lýsa leiknum.

Þeir sem hafa skráð sig til leiks í„All star liðið" eru eftirfarandi:

Þjálfari: Gulli Jóns

Arnar Grant  

Arnór Dan  

Ásgeir Erlends

Björn Bragi  

Björn Hlynur

Elli Jack

Kristmundur Axel

Gísli Örn

Gunnar Nelson

Ingó Veðurguð

Ívar Guðmunds

Ásgeir Orri  í Stop Wait Go  

Steindi Jr.  

Tryggvi Guðmundsson

Gulli landsliðsmarkmaður  

Listinn er ekki tæmandi, og gætu fleiri „celeb“ bæst við.

Og í liði Verzlunarskólans eru:

Arnar Sveinn Geirsson

Arnþór Ari Atlason

Daníel Freyr Guðmundsson

Elvar Páll Sigurðsson

Heiða Dröfn Antonsdóttir

Kristín Sverrisdóttir

Magnús Örn Þórsson

Marteinn Urbancic

Oddur Björnsson

Orri Gunnarsson

Rut Kristjánsdóttir

Sigurður Hrannar Björnsson

Sindri Snær Magnússon

Telma Ólafsdóttir

Tómas Óli Garðarsson

Í tilkynningu frá Verzló að leikurinn verður stórskemmtilegur. „Sláið tvær flugur í einu höggi njótið skemmtilegrar kvöldstundar og styrkið gott málefni!“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×