Innlent

Halda alþjóðadag hátíðlegan

Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) efnir til hátíðarhalda á morgun í tilefni alþjóðadags kvenna. Hátíðin fer fram á Grand hóteli frá klukkan 17 til 19. Allar konur eru velkomnar ásamt gesti.

Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að þúsundir viðburða séu haldnir í tilefni Alþjóðadagsins um víða veröld. Tilgangur þeirra sé að sameina konur, auka sýnileika og tækifæri þeirra. Eitt af markmiðum FKA sé að virkja tenglsanet kvenna í atvinnurekstri og því sé ætlunin að félagskonum, sem selji vörur og þjónustu, gefist tækifæri til að kynna sig á Grand hóteli á morgun.- kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×