Innlent

Sviðsetti rán til að stríða félögunum

Hópi sundfélaga, sem hafði sameiginlegan klefa í sundmiðstöðinni í Keflavík, brá heldur betur í brún að loknu sundinu í gærkvöldi, þegar í ljós kom að allir farsímar, iPpod tæki, úr, skór og fleiri verðmæti, voru horfin úr klefanum.

Þeir kölluðu á lögreglu, sem kom á vettvang, en loksins þegar þar var komið sögu, gaf einn félagi þeirra sig fram og sagðist hafa gert þetta til að hrekkja vinina, og skilaði öllu aftur. Hann á yfir höfði sér langa og ískalda sturtu, næst þegar hópurinn fer í sund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×