Apparat tvisvar á Sódómu 24. mars 2011 09:00 ræða við danska útgáfu Útgáfan Crunchy Frog hefur áhuga á að gefa út nýjustu plötu Apparat Organ Quartet. „
Við spiluðum oft á stöðum eins gamla Grand rokki þar sem var troðið af fólki og hávaði og stemning,“ segir Úlfur Eldjárn úr hljómsveitinni Apparat Organ Quartet. Apparatið kemur fram á tónleikum á Sódómu í kvöld og annað kvöld. Hljómsveitin kemur ekki reglulega fram á tónleikum og hefur yfirleitt komið fram á stærri stöðum. „Það er langt síðan við höfum spilað á svona litlum stað,“ segir Úlfur spenntur. „Yfirleitt höfum við spilað á Nasa eða Listasafninu. Það eru mörg, mörg ár síðan við höfum spilað á almennilegum búllutónleikum eins og í den.“ Apparat sendi frá sér plötuna Pólýfónía í fyrra og var hún ofarlega á listum gagnrýnenda yfir plötur ársins. Hljómsveitin á nú í viðræðum við danska útgáfufyrirtækið Crunchy Frog um útgáfu á plötunni í útlöndum. „Það er mjög mikill vilji af beggja hálfu. Við eigum eftir að klára útfærsluna,“ segir Úlfur en ítrekar þó að ekki sé búið að skrifa undir samninga og því ýmislegt sem eigi eftir að útfæra. Ef af samningnum verður býst hann þó við að plötunni verði dreift um Evrópu og þá aðallega í Norðurlöndunum, Þýskalandi og Benelúxríkjunum, þar sem Apparatið á tryggan aðdáendahóp. „Þeir hafa verið duglegir við að bjóða okkur að koma og spila í gegnum tíðina,“ segir Úlfur. „Það er alltaf gott samband á milli smáþjóða.“ - afb
Tónlist Mest lesið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Úr Idolinu yfir í útvarpið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Lífið Frumsýning á Vísi: Rokkað á miðju gólfi komin sjö mánuði á leið Tónlist Hjem til jul aftur á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur „Æsandi að hugsa til þess að annar maður horfi á“ Breyttu Kolaportinu í risa skemmtistað „Æi góði hoppaðu upp í rassgatið á þér!“ Norðlenskur útsýnisdraumur „Hvar eru allir herramennirnir?“ Stefnumótunarferð Fossa með mökum í Prag Hittast á hlutlausum stað Risavaxinn mörgæsarungi nýjasta stjarna Melbourne Magnaðar myndir af lengstu á landsins Seldu Kolbeini Sigþórs og keyptu í miðbænum Tóku hraðanum misalvarlega en hlupu fyrir langveik börn Sjá meira