Handbolti

Valskonur unnu stóran sigur í Árbænum - Fram vann líka

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rebekka Rut Skúladóttir.
Rebekka Rut Skúladóttir.

Íslandsmeistarar Vals unnu sinn tíunda leik í röð í N1 deild kvenna í dag þegar liðið vann 22 marka sigur á Fylki í Árbænum. Valur og Fram eru áfram jöfn að stigum á toppnum því Fram vann á sama tíma 23 marka sigur á ÍR í Austurberginu.

Stjarnan er fjórum stigum á eftir efstu liðunum eftir öruggan heimasigur á Gróttu og HK styrkti stöðu sína í 6. sætinu með 14 marka sigri á Haukum.



Úrslit og markaskorarar í N1 deild kvenna í dag:


Fylkir - Valur 18-40 (8-17)

Mörk Fylkis: Sunna María Einarsdóttir 7, Sunna Jónsdóttir 4, Kristrún Steinþórsdóttir 2, Nataly Sæunn Valencia 2, Anna María Guðmundsdóttir 1, Sigríður Hauksdóttir 1, Unnur Ómarsdóttir 1.

Mörk Vals: Anett Köbli 7, Dagný Skúladóttir 6, Karolína B. Gunnarsdóttir 6, Íris Ásta Pétursdóttir 5, Hildigunnur Einarsdóttir 4, Rebekka Rut Skúladóttir 3, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 3, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 3, Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 2, Kristín Guðmundsdóttir 1.



HK-Haukar 34-20 (15-9)

Mörk HK: Brynja Magnúsdóttir 9, Líney Guðmundsdóttir 4, Elín Anna Baldursdóttir 4, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 4, Harpa Baldursdóttir 4, Elísa Ósk Viðarsdóttir 3, Tatjana Zukovska 3, Auður Ómarsdóttir 1, Heiðrún Helgadóttir 1, Salka Þórðardóttir 1.

Mörk Hauka: Erla Eiríksdóttir 4, Gunnhildur Pétursdóttir 4, Sandra Sif Sigurjónsdóttir 3, Katerina Baumruk 2, Viktoría Valdimarsdóttir 2, Þórdís Helgadóttir 1, Agnes Ósk Egilsdóttir 1, Sjöfn Ragnarsdóttir 1, Karen Helga Sigurjónsdóttir 1, Hekla Hannesdóttir 1.



Stjarnan-Grótta 35-23 (20-14)

Mörk Stjörnunnar: Hanna Guðrún Stefánsdóttir 11, Jóna Margrét Ragnarsdóttir 7, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 5, Gunnur Sveinsdóttir 3, Sólveig Lára Kjærnested 3, Elísabet Gunnarsdóttir 2, Nína Kristín Björnsdóttir 2, Kristín Jóhanna Clausen 1, Aðalheiður Hreinsdóttir 1.

Mörk Gróttu: Hildur Marín Andrésdóttir 5, Ásrún Lilja Birgisdóttir 4, Lovísa Rós Jóhannsdóttir 3, Björg Fenger 3, Sóley Arnarsdóttir 2, Katrín Viðarsdóttir 2, Steinunn Kristín Jóhannsdóttir 2, Auður Ólafsdóttir 1, Sigrún Birna Arnardóttir 1.

ÍR-Fram 13-36 (6-20)

Mörk ÍR: Silja Ísberg 6, Steinunn Birna Sveinbjörnsdóttir 1, Stella Reynisdóttir 1, Elisabeth Kowal 1, Guðmunda Magnúsdóttir 1, Sif Jónsdóttir 1, Guðrún Ása Eysteinsdóttir 1, Hekla Rún Ámundadóttir 1.

Mörk Fram: Marthe Sördal 6, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 5, María Karlsdóttir 5, Stella Sigurðardóttir 4, Sigurbjörg Jóhjannsdóttir 4, Steinunn Björnsdóttir 4, Hildur Þorgeirsdóttir 2, Díana Ágústsdóttir 2, Pavla Nevarilova 2, Hafdís Shizuka Iura 1, Karen Knútsdóttir 1.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×