Erlent

Hárþjófa leitað

Verðmætt hár. Myndin er úr safni.
Verðmætt hár. Myndin er úr safni.
Lögreglan í Chicago leitar þjófa sem brutust inn í vöruskemmu í eigu snyrtifyrirtækis og stálu miklu magni af hári.

Lögreglan klórar sér bókstaflega í kollinum yfir málinu en þeir hafa ekki rannsakað hárstuld áður.

Þjófarnir virðast hafa farið inn í vörugeymsluna með því að brjóta upp stóra járnhurð. Þar fundu þeir hárið og stálu.

Ekki hefur verið gefið upp hversu mikil verðmæti eru fólgin í hárinu. Lögreglan hefur þó gefið upp að um talsverðar fjárhæðir sé að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×